Niðurteljarinn

Lilypie Maternity tickers

Sunday, March 21, 2010


Síðastliðinn mánudag fengum við það staðfest að lítil mannvera býr innra með mér og hún virðist lifa þar mjög góðu lífi. Snemmsónarinn kom afar vel út og sýndi að meðgangan er komin lengra en við höfðum reiknað út. Ef eitthvað er að marka mælingarnar þá er vika 15 langt komin núna.

Við gátum ekki beðið lengur með að segja Heklu gleðifréttirnar enda hún búin að óska þess lengi og oft að verða stóra systir.

Við sýndum henni myndirnar og spurðum hana hvort hún vissi hvað þetta væri. Hún svaraði því að þetta væri hún enda hefur hún séð svona sónarmyndir af sér. Hún reiddist þegar við sögðum henni að þetta væri ekki hún og hún róaðist ekki fyrr en við náðum í myndaalbúmið hennar og sýndum henni sónarmyndina hennar!

Eftir nokkra bið setti hún upp hræðslusvip og sagði ”þetta er bara MONSTER”. Á endanum tókst að útskýra fyrir henni hvað væri í vændum og þá glaðnaði heldur betur yfir þeirri stuttu og hún sagði hátt og snjallt: ”Takk mamma mín”. Vonum bara að hún verði jafn innilega glöð þegar litla systkynið hennar fæðist. Hún er reyndar samfærð um að barnið sé stelpa og sættir sig ekki við þá staðreynd að það sé mikill möguleiki á því að það geti verið strákur!

14 kommentarer:

harpa said...

knús á ykkur fallega fólk!

gott ef þetta eru ekki axlirnar hans pálmars

ElsaGuðný said...

Dásamlegt :)
Innilega til hamingju öllsömul!

Kristín Inga said...

Innilega til hamingju kæru vinir :)
Alltaf gaman þegar góðu fólki fjölgar.
Kær kveðja úr Eyjafirðinum.

Einrún said...

Innilega til hamingju með bumbubúann. Gaman að þessu og nú er bara að ná systu í þessu,spurnig hvort þíð verið með stelpuhópinn. Gangi þér vel Linda min og farðu vel með þig.
knús Einrún og co

Anonymous said...

Frábært að heyra að allt hafi gengið vel!
Bestu kveðjur frá Hamborg.

Brynhildur said...

Nei en gaman! Til hamingju með væntanlegu viðbótina. Knúst Brynhildur

steingerdur said...

Stórt og mikið knús á ykkur öll - yndislegt að fá að sjá kúlubúann og við hlökkum öll mikið til að hitta litlu systur/bróður sem er sko aldeilis ekki monster, takk fyrir !

Sóley said...

Innilega til hamingju með þessar skemmtilegu fréttir. Hlakka til að fá loks að sjá þig með kúlu í sumar ;)
Kveðja Sóley

Anonymous said...

Usss hvad thid erud at smita fra ykkur, madur faer nu aldeilis fidring i magann vid at sja svona myndir :)
Ma sem sagt fara at spjalla vid Heklu um komandi systur/brodur, aetli LM heimti ekki at fa eins og Hekla :)

Kv. Rakel

helgalyng said...

Barasta yndislegt! Innilega til hamingju :)

Ragnheiður said...

Til hamingju og gangi ykkur vel með framhaldið. kv. Árskógabúar :)

Mæja said...

Til lukku með þetta elskurnar :) Frábærar fréttir :)

Steinrún Ótta said...

VEi, vei, vei..... til hamingju með þetta. Kemur reyndar ekki á óvart ;o)
Klárlega toppeintak þarna í þróun miðað við hvað fyrra eintakið er einstaklega vel heppnað!

Vordís said...

Loksins, kom að því :D
Innilega til hamingju öll sömul. Þetta er bara frábært.
Knús á liðið.