Niðurteljarinn

Lilypie Maternity tickers

Friday, March 12, 2010

Þrjú ár

Það getur verið ágætt að vissu leiti að lifa í óvissu en ákveðin framtíðarplön eru nú samt sem áður nauðsynleg, sérstaklega þegar maður býr á erlendri grundu eins og við! Við erum því afskaplega kát með nýlega undirritaðan ráðningasamning Pálmars við Djurgården Fotboll. Samningurinn gildir til 31.desember 2012 sem þýðir að við eigum að öllum líkindum eftir að búa hér í þrjú góð ár í viðbót.
Að sjálfsögðu fylgja blendnar tilfinningar þessum samningi! Áframhaldandi takmarkaðir möguleikar á "alvöru" sumarfríi og flutningur heim til Ice ekki líklegur fyrr en 2013 er staðreind!
Á hinn boginn og það sem vegur enn þyngra er að við fáum tækifæri á að búa í þessari undursamlegu borg í þrjú góð ár, taka á móti vinum og ættingjum sem hingað koma, læra enn betri og fallegri sænsku og njóta veðurblíðunnar á sumrin og snjóþungra vetra!! Það er nefnilega svo að þegar sú fluga kemur í höfuðið á okkur að hugsa til heimferðar (flytja heim til Íslands) fáum við hnút í magann og finnum að við erum ekki alveg til í að yfirgefa þetta góða líf sem við lifum hér!

Semsagt nýr samningur í höfn og iPhone innifalinn! Getur maður beðið um eitthvað meira ;)

4 kommentarer:

Kristín Inga said...

Innilega til hamingju elskurnar, það eru þá enn meiri líkur til að þess að ég geti heimsótt þig :)

Anonymous said...

til hamingju með þetta.það er gott að vera ekki í óvissunni núna og lifa lífinu. Það verður að því að maður láti einhverntímann sjá sig eða það yrði að vinkonuferð(hver veit)
knús Einrún

Mæja said...

Til lukku með þetta elskurnar :) Skil ykkur vel að vilja búa áfram í þessari yndislegu borg :)
Knús á línuna, Mæja :)

harpa said...

jú það held ég linda ;)

annars er pálmar áberandi myndarlegasti maðurinn á þessari mynd ;)