
Carl Gustav hefur heldur betur tapað kúlinu. Annar og mun valdameiri konungur hefur tekið öll völd hér í Svíþjóð og það er ekker útlit fyrir því að hann gefi neitt eftir! Vetur konungur lætur ekkert stoppa sig!!
Við smelltum okkur upp til Dalanna um síðustu helgi í skíðaferð með sérvöldum flokki fólks. Ferðin heppnaðist í alla staði frábærlega en kuldahörkur settu svip sinn á skíðamenskuna! Litlu dömurnar í ferðinni, þar á meðal Hekla fengu smá smakk prufu af því að skíða og það verður ekki sagt annað en að það hafi gengið nokkuð vel en úthaldið í frostinu var kanski ekki neitt til að hrópa húrra fyrir. Við stefnum að því að endurtaka leikinn aftur í apríl með þá von í hjarta að vetur konungur verði aðeins mildari við okkur!!!
Semsagt, allt á kafi í snjó og kuldinn jaðrar við að vera hræðilegur!!! En þetta á víst að vera svona, það er jú febrúar og ekkert eðlilegra en að það sé snjór og kuldi.
Pálmar er flogin á vit ævintýranna í sólskynslandinu Tyrklandi, þar sem hann ásamt DIF mun dvelja við æfingar næstu vikuna!
Við Hekla höldum okkur bara undir teppi með kakó og kex á meðan hann sleikir sólina ;)

0 kommentarer:
Post a Comment