Já sælt veri fólkið og gleðilegt ár!
Nú er frábær tími á landinu kalda liðinn og við kominn heim til Svíþjóðar sem í augnablikinu er reyndar töluvert kaldara land en Ísland. En okkur er hlýtt innanbrjósts og full þakklæti fyrir alla þá góðu vini og fjölskyldu sem við eigum. Nú tekur rútínan við, Hekla farin í leikskólann og við farin að vinna. Okkur hlakkar mikið til að takast á við ný verkefni á nýju og spennandi ári.

Egilsstaðir sviku ekki frekar en fyrri daginn, tóku á móti okkur í sparifötunum, nýföllnum og kristaltærum snjó sem þakti jörðina með þykku lagi. Alveg eins og í gamla daga!!!
Fólkið á Egilsstöðum klikkaði svo sannarlega ekki heldur ;)

Við klæddum okkur upp í okkar fínasta púss á aðfangadag og biðum spennt eftir að opna alla fallegu pakkana sem voru undir jólatrénu á Koltröðinni.
Að öllum ólsöstuðum var ein sem bar af, bæði hvað varðar glæsileika í klæðnaði, spenningi og jólagleði!!! Hún naut sín en var hóvær þegar að opnun pakkanna kom, deildi út pökkum til annarra samviskusamlega og var ekkert að stressa sig um of á því að opna sína eigin pakka. Hún var yfir sig ánægð með innihald pakkanna!
Áramótin héldum við svo hátíðleg með "sunnan" genginu hans Pálars, í glæsilegum 2007 bústað Kennarasambandsins á Flúðum. Veðrið sveik ekki frekar en fyrri daginn og útsýnið á gamlárskvöld var magnað. Hekla (fjallið) blasti við okkur og nafna hennar var stolt yfir því að fjallið heiti alveg eins og hún. Hún misskildi samt eitthvað aðeins og stendur enn í þeirri meiningu að fjallið heiti "Hekla Sól"!!!
Við óskum ykkur öllum alls hins besta á árinu 2010

5 kommentarer:
Hæ Hæ kæra fjölskylda
Óskum við ykkur gleðilegs nýrs árs og þökkum fyrir það liðna. Einnig þökkum við stundirnar á íslandi.Spilakvöld og skötuveislan,hún klikkar ekki. Njótið nýja ársins og hugsið vel um hvort annað.
knús Einrún
Gleðilegt ár kæra fjölskylda og megi nýja árið verða ykkur heillaríkt:) Það var mjög gaman að hitta ykkur aðeins meðan þið dvölduð á austurlandinu. Sjáumst svo hress í júlí ;)
Bestu nýársóskir frá staffinu í Laugardalnum. Vonum að árið 2010 verði ykkur gæfu- og gleðiríkt.
Kveðja,
Halla
Okkar maður var aftur á móti fljótur að henda mjúku pökkunum í ruslapokann og biðja bara um annan!
vel upp alinn ungur maður!!
Gleðilegt nýtt ár sæta fjölskylda. Vonum að nýja árið færi ykkur gleði og hamingju. Bestu kveðjur úr gulahúsinu.
Post a Comment