Niðurteljarinn

Lilypie Maternity tickers

Friday, January 22, 2010

Bíll



Eftir þriggja og hálfs árs búsetu í Svíþjóð keyptum við okkur loksins bíl!!! Dáldið sein að taka við okkur en hingað til höfum við ekki talið okkur þurfa bíl, heldur bara tekið Nenna níska á þetta og fengið bíla vina okkar og vandamanna að láni af og til !!! Nú er það vonandi (fyrir vini okkar) á enda og óskandi að við getum goldið greiðana til baka;) Bíllinn er reyndar hvorki bleikur né líkt því eins speisaður og þessi bíll hér að ofan en nógu er hann nú flottur samt! Þrátt fyrir fögur fyrirheit varð ekki að því að við keyptum Volvo, allavega ekki í þetta sinn en Toyota Prius varð fyrir valinu, enda með eindæmum góð kaup að sögn viðskiptafræðings heimilisins!

Hér er svo drossían

6 kommentarer:

ElsaGuðný said...

Til hamingju með drossíuna! Kallar þetta ekki á a.m.k. eina auka æfingu í viku? ;)

María said...

Geggjað flottur :) Til lukku :)

harpa said...

ótúlega dædur!

okkur vantar alltaf bíl að láni annað slagið ;)

Gyða said...

Jahso! Til lukku með krílið. Það þarf að pakka létt þegar farið verður í ferðalag á þessum sýnist mér. En er hann kannski einn af þessum sem eru risasmáir?

Kveðja AUGASteinar

Sóley said...

Til lukku með gripinn:)
Toyota hefur nú alltaf staðið fyrir sínu ;)

Anonymous said...

Til hamingju með drossíuna! Glæsilegasta faratæki :)
Kv. Inga maja