Niðurteljarinn

Lilypie Maternity tickers

Sunday, November 1, 2009

Brons

Pálmar mætti ofurjörlum sínum í úrslitum crossfit keppninnar og endaði í þriðja sæti. Engu að síður geggjaður árangur og við Hekla Sól erum endalaust stoltar af Ofur-Pálmarnum okkar!!!
Bandaríkjamaðurinn sem sigraði var nátturulega bara í ruglinu og það átti enginn roð í hann. Hann sannaði það semsagt að allt er gott sem kemur frá Bandaríkjunum. Ég fer nú samt ekki ofan af því að hann er ekki alveg í lagi í hausnum eins og margir landar hans en það er algerlega mín skoðun og þarf ekki að endurspegla skoðunn annarra!!!
Alexander, Hvítrússinn á svæðinu endaði í öðru sæti. Við borðuðum kvöldverð með honum eftir keppnina í gær og síðan þá hefur Hekla tekið hann "upp á arminn" og tók það skírt fram þegar ég talaði um að við þyrftum að heja á pabba að við mættum alls ekki gleyma að heja á Alexander vin sinn!!! Ég held satt að segja að sá stuðningur hafi gert gæfu muninn!!


Að öllu gamni sleptu þá gerði Pálmar algerlega sitt allra, allra besta og hinir tveir voru einfaldlega betri. Sem fyrr þá eru frekari upplýsingar um keppnina að finna inn á cross fit nordic síðunni

Nú erum við á heimleið frá Halmstad, um 6 tíma akstur takk kærlega fyrir. Við missum því miður af leik Djurgarden en liðið er að berjast fyrir lífi sínu í Alsvenskan í dag!! Við verðum að láta útvarpssendinguna duga og hlökkum til að fylgjast með okkar mönnum halda voninni lifandi.

6 kommentarer:

Mæðginin í Stokkhólmi said...

Vá það er naumast! Þetta er frábær árangur, til hamingju Pálmar! Ég held að þú sért þá ekkert svakalega ánægður með mig núna, búin með heilan kúlusúkk poka um helgina, özzz :-D hlakka til að sjá ykkur sem fyrst. Kveðja
Ásdís og Björgvin

Mæðginin í Stokkhólmi said...

Heyrðu, Linda, er þetta þú sem ert á myndinni í Event 3? vá þetta er bara alveg eins, varst þú líka að keppa?

HeLP said...

Hehe! Nei þetta er ekki ég, því miður, því þetta er sú sem vann keppnina! Hefði verið gaman ef þetta væri ég ;)

Linda said...

Grattis grattis!

Steinrún Ótta said...

Til hamingju með drenginn!

Óli frændi said...

Til hamingju þið öll - glæsilegt Pálmar!